|
|
|
|
|
Þýddar fréttir
|
|
|
|
|
|
|
|
Viðtal við Roy Sucholeiki lækni
Roy Sucholeiki er læknir sem bjó til myndband sem heitir á frummálinu The World of Epilepsy, a People's Guide to Understanding Epilepsy
Hvað fékk þig til að útbúa myndband um flogaveiki?
Á fundum með fólki sem greinst hafði með flogaveiki tók ég eftir miklum misskilningi og skorti á vitneskju um flogaveiki. Það að sjá þörfina fyrir sjúklinga að fá betri vitneskju var drifkrafturinn á bak við myndbandið.
Ég hélt að með því að kynna flogaveiki almennt fyrir sjúklinga yrðu þeir betur upplýstir. Mín von var að heimsóknirnar á læknaskrifstofuna nýttust betur og yrðu árangursríkari ef ég þyrfti ekki að að fræða sjúklinginn um flogaveiki frá grunni á þessum takmarkaða tíma á skrifstofunni. Með því gætum við gefið okkur tíma í það tala um ákveðin málefni sem tengdist hluteigandi sjúklingi. Þegar þú lætur sjúkling fá DVD disk sem hann geta horft á þegar honum hentar og eins oft og hann þarf þá á hann einnig auðveldara með að muna upplýsingar. Það sem meira er þá geta þeir boðið fjölskyldu og vinum að horfa á og læra af því.
Áætlaðir þú að myndbandið yrði mikið notað?
Upphaflega átti bara að nota myndbandið á minni læknastofu. En þegar leið á þá hitti ég ungan framleiðanda Amy Duzinski og fannst okkur að við gætum búið til eitthvað faglegra sem við gætum dreift víða og gæti nýst öllum. Til að gera það vantaði okkur fjármagn. Sem betur fer fengum við fræðslustyrk frá lyfjafyrirtækjum sem dugði fyrir framleiðslunni og er myndbandið nú aðgengilegt til fræðslu fyrir góðgerðarsamtök.
Hvernig er DVD diskurinn hannaður?
Hann á að gefa yfirsýn yfir flogaköst, hvenær og hvernig flogaveiki er greind og segir frá núverandi viðurkenndum meðferðum. Þar að auki og það sem ég tel að geri diskinn sérstakan er fólkið með flogaveiki sem greinir frá reynslu sinni. Við ræðum líka um hvernig algengar ranghugmyndir um flogaveiki komu til og hvernig þær hafa sett blett á flogaveiki. Þó að myndbandið sé næstum klukkustund að lengd þá er því skipt niður í kafla sem leyfir áhorfandanum að velja það efni sem hann hefur áhuga á.
Hvað vonar þú að sjúklingurinn læri af þessu?
Ég vil að sjúklingurinn læri að það eru til læknar og læknastöðvar sem sérhæfa sig í flogveiki. Mér er sérstaklega umhugað um þá sjúklinga sem ekki hefur náðst full stjórn á flogum hjá, þeim sem hefur ekki verið sinnt sem skildi og sem hafa ekki fengið möguleika á að hitta sérfræðing í flogaveiki.
Fyrir fjölskyldu og vini þeirra sem eru með flogaveiki er tilgangur myndbandsins að draga huluna af og reyna að afmá þann blett sem er á flogaveiki. Stundum er ég mjög gáttaður á þeim misskilningi sem snýr að flogaveiki. Ég vona að upplýsingarnar sem eru í myndbandinu hjálpi sjúklingum að takast á við flogaveiki eins og þeir myndu takast á við önnur læknisfræðileg vandamál.
http://www.epilepsy.com/epilepsy/world_epilepsy_dvd
Geta einstaklingar með flogaveiki spáð fyrir um flog sín?
Samkvæmt niðurstöðu rannsókna sem birt var í vísindatímarit Bandarískra taugalækna, Neurology ( janúar 23, 2007) geta sumir einstaklingar með flogaveiki vitað með með nokkri vissu hvenær líklegt er að þeir fái flog. Rannsakendur telja að þessar niðurstöður leiði til betri möguleika á að fyrirbyggja flog hjá fólki með flogaveiki. “Margir tala um að þeir geti skynjað ákveðin tímabil þar sem auknar líkur eru á flogum, en þetta hefur ekki verið skoðað gaumgæfilega áður,“ segir höfundur skýrslunnar Dr. Sheryl Haut við Montefiore Medical Center í Bronx, New York.
Rannsakaðir voru 71 sjúklingur sem hafði fengið að minnsta kosti eitt flog á 12 mánaða tímabili en ekki fleiri en eitt á dag. Sjúklingarnir voru beðnir um að halda dagbók þar sem þeir skráðu hversu líklegt væri að þeir fengu flog næsta sólahring.
57 sjúklingar fengu flog á meðan á rannsókninni stóð. Af þessum sjúklingum kom í ljós að um 32% spáðu rétt fyrir um það hvort þeir fengu flog og 83% um að þeir ættu flogalausan dag. Líkur voru tvisvar sinnum meiri á að flog kæmi innan sólahrings ef spáin var jákvæð.
Sumir voru mjög næmir á flogin sín. “ Í rannsókninni kom í ljós að hjá ákveðnum hópi (12 einstaklingar) voru líkurnar á flogum um þrisvar sinnum meiri ef spáin var jákvæð,” sagði Haut. Þegar þessir einstaklingar voru ungir og höfðu tíð flog, var engin annar þáttur sem skar sig úr sem líkleg skýring fyrir þessari auknu nákvæmi þeirra.
Ef þessar niðurstöður verða notaðar í frekari rannsóknum getur þessi hæfileiki, að sjá fyrir um flog, verið mikilvæg vísbending í meðferð við flogum.
“Sjúklingar sem geta með nokkrri vissu spáð fyrir um aukna hættu á flogum geta hugsanlega tekið lyf til að hafa áhrif á flogið áður en það byrjar,” segir Haut. “Nákvæm spá um aukna hættu er einnig mikilvæg þar sem það getur skapað ákveðið öryggi og aukið lífsgæði fólks með flogaveiki.”
“Rannsóknin hefur nokkrra takmarkanir, s.s. að sjúklingarnir skráðu sjálfir eigin spá og flog, en á heildina litið er hún mikilvægt skref fram á við til að öðlast betri stjórn á flogum og auka þannig lífsgæði fólks með flogaveiki, “ segir Haut.
Janúar 2007 - af heimasíðu samtaka flogaveikra í Bretlandi,
www.epilepsy.org.uk/ |
|
|
|
|
|
|
|