Heim arrow Fréttir
Fréttir
Fréttir
Sumarlokun
föstudagur, 2. júl
Skrifstofa Lauf verður lokuð frá 5. júlí til 19. júlí einnig frá 13. ágúst til 23 ágúst.
 
Aðalfundur Lauf 8. maí 2010
föstudagur, 2. júl
Góð mæting var á fundinn og var stjórnin endurkjörinn. Samþykkt var að breyta nafni félagsins úr Lauf Landssamtök áhugafólks um flogaveiki í Lauf Félag flogaveikra.
 
Styrktar-og minningatónleikar í Fríkirkjunni 22. júlí 2010 kl. 20:00
föstudagur, 2. júl
Fram koma Sigríður Aðalsteinsdóttir óperusöngvari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari. Flutt verður blönduð ljóða- og óperudagskrá. Hluti laganna sem flutt verða fjalla um systur. Tónleikarnir eru haldnir til minningar um systur söngkonunnar Helgu Aðalsteinsdóttur sem var fædd 7.12.1960 dáin 1.8.1990. Efnisskráin verður bæði með léttu og dramatísku ívafi og við hæfi sem flestra.

Félagar í Laufi eru hvattir til að mæta vel og taka með sér gesti.
Hægt er að lesa nánar um tónleikana og flytjendurna á www.syngja.is. Einnig á facebook Sigríður Aðalsteinsdóttir
 
Félagsgjöld
miðvikudagur, 18. mar
Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldin 2009 verða sendir út fljótlega.

Við hvetjum félaga til að greiða þá fljótt og vel.
 
Minningarkort Laufs
miðvikudagur, 18. mar
Ef þið ætlið að senda samúðarkort viljum við minna ykkur á minningarkort Laufs.

Með því styrkið þið samtökin, því margt smátt gerið eitt stórt.
 
Afmælisfagnaður LAUFS
miðvikudagur, 18. mar
Kæru félagar

Í tilefni af tuttugu og fimm ára afmæli Laufs – Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki,  langar okkur að bjóða þér til afmælisfagnaðar þann 28.03.2009 í safnaðarheimili Áskirkju, Vesturbrún 104, neðri sal (gengið inn að neðanverðu, þar eru líka bílastæði).

Afmælisfagnaðurinn hefst klukkan 15:00 og í boði verða léttar veitingar og skemmtiatriði.

Þeir sem koma fram eru:
  • Þorlákur Hermannsson formaður
  • Stúlkur úr Þjóðlagasveit Akraness
  • Töframaðurinn Lalli
  • Halldór Gylfason, leikari
  • Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur
Vonandi sérð þú þér fært að koma og gleðjast með okkur á þessum merkisdegi í sögu félagsins.

Stjórn Laufs
 
Aðalfundur LAUFS
miðvikudagur, 18. mar
Aðalfundur Laufs, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki verður haldinn laugardaginn 28. mars 2009 klukkan 13:00 í Safnaðarheimili Áskirkju Vesturbrún 104, neðri sal - gengið inn að neðanverðu (þar eru líka bílastæði)

Dagskrá:
  • Fundur settur
  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Lesin fundargerð síðasta aðalfundar
  • Skýrsla stjórnar flutt
  • Reikningar lagðir fram til samþykkis.
  • Félagsgjald er ákveðið fyrir eitt ár í senn
  • Kosning í stjórn samtakanna
  • Kosinn skoðunarmaður ásamt varamanni
  • Önnur mál

Einungis þeir sem skráðir eru félagsmenn LAUFS fyrir boðun aðalfundar hafa rétt til fundarsetu og atkvæðisrétt.

Við hvetjum alla félagsmenn til þess að mæta.

Stjórnin
 
Laufblaðið 02.08
þriðjudagur, 2. des
Laufblaðið 02.08 er komið út og er komið inn á heimasíðuna undir Um samtökin/Útgefið efni.
 
Fréttabréf LAUF
fimmtudagur, 27. nóv
Fréttabréf LAUF
 
Lesa meira...
Óvissuferð
þriðjudagur, 25. nóv
Laugardaginn 30. ágúst síðast liðinn fór hópur fólks í ferðalag í boði LAUF. Dagana áður hafði verið rok og rigning, þannig að við vorum búin að liggja á bæn og biðja um gott veður, en kvöldið áður vorum við hjá LAUF hálf óróleg, enda ekki enn búin að fá svar um það að við hefðum verið bænheyrð varðandi veðrið.

Við lögðum af stað klukkan ellefu að morgni frá Hátúni 10b. Það var góð þátttaka og voru allir mættir sem höfðu skráð sig í ferðina.
 
Lesa meira...
Óvissuferð
fimmtudagur, 14. ágú

Komið þið sæl kæru félagar í Laufi!

Nú þegar sumri er tekið að halla og vonandi flestir heima eftir sumarfrí ætlum við í Laufi að bjóða félögum okkar að koma með okkur í óvissuferð. Ferðin verður ykkur að kostnaðarlausu og verður boðið upp á veitingar einu sinni í ferðinni. Ef til vill er gott fyrir foreldra að hafa með sér eitthvað nesti fyrir börnin.

Við erum búin að panta gott veður og þá er bara að taka með sér góða skapið

Farið verður frá Hátúni 10b með rútu laugardaginn 30. ágúst kl. 11.00 og stefnt verður að því að koma aftur til baka um kl. 18.00.

Þeir sem hafa áhuga tilkynni það á skrifstofu Laufs í síma 551-4570 eða á lauf@vortex.is fyrir miðvikudaginn 20 ágúst.

ÞESSI FERÐ VERÐUR EINGÖNGU FARIN EF NÆG ÞÁTTAKA FÆST Þ.E. EF ÞAÐ VERÐUR GÓÐ NÝTING Á RÚTUNNI – ANNARS EKKI

 

 
Reykjavíkurmaraþon Glitnis
miðvikudagur, 13. ágú
Reykjavíkurmaraþon Glitnis fer fram laugardaginn 23. ágúst næstkomandi. Glitnir og Lauf hafa gert með sér samning þess efnis að þátttakendur geti heitið á félagið. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum www.marathon.is
 
Sumarlokun
miðvikudagur, 2. júl
Skrifstofa LAUFs verður lokuð frá og með 2 júlí til 11 ágúst en hægt verður að hafa samband í gegnum tölvupóst.

Kv. Starfsfólk LAUFs
 
Andlát
miðvikudagur, 2. júl
Þann 13. júní síðastliðinn lést Jónína Björg Guðmundsdóttir félagsráðgjafi eftir erfið veikindi. Jónína starfaði fyrir LAUF í meira en 12 ár og sinnti sínu starfi þar af frábærri alúð og einstökum áhuga. Jónína sat í stjórn Evrópuráðs flogaveikra og tók einnig þátt í norrænu samstarfi flogaveikra. Í starfi sínu vann hún ötullega að því að reyna að bæta heiminn fyrir þá sem urðu á vegi hennar og þurftu á hennar hjálp að halda. Hennar er sárt saknað af öllum sem hana þekktu.

Smelltu
 
Bolir
fimmtudagur, 15. maí

Okkur var bent á þessa síðu og langar til að sýna ykkur http://www.bustedtees.com/epilepsy.

Kv. Starfsfólk Laufs

 
Minningarkort
miðvikudagur, 14. maí
Nú eru hægt að senda minningarkort frá heimasíðunni okkur. Smelltu hér til að lesa nánar um minningarkortin.
 
Ráðstefna um flogaveiki í Frakklandi fyrir þig!
fimmtudagur, 8. maí
11. Evrópuráðstefnan um flogaveiki og samfélag verður að þessu sinni haldin í Marseille í Frakklandi dagana 15-17 október 2008. Um er að ræða mjög áhugverða ráðstefnu þar sem fjallað veður um flogaveiki og áhrif hennar á börn og fullorðna. Á heimasíðu ráðstefunnar má sá dagskrána og hvaða fyrirlestrar verða í boði. Við hvetjum fólk til að mæta og kynna sé hvað er að gerast í málefnum flogaveikra. Einnig til að hitta aðra og deila sameiginlegri reynslu.

 
Lesa meira...
Minningarkort Laufs
miðvikudagur, 30. apr

Minningarkort Laufs

Við viljum vekja athygli á að hjá Laufi eru til minningarkort. Ef fólk vill minnast látinna ástvina með því að senda minningarkort og styrkja þannig um leið starfsemi Laufs. Til að senda minningarkort þarf að hafa sambandi við skrifstofu Laufs í síma 551-4570.

 
35 Íslendingar hlaupa til styrktar flogaveikum börnum í Boston-maraþoni
mánudagur, 21. apr

Vilja varpa ljósi á flogaveiki

Styðja við fræðsluverkefni LAUF
"Ég á flogaveika dóttur og fannst mér bera skylda til að vekja athygli almennings á þessum alvarlega sjúkdómi, koma flogaveikinni úr skugganum," segir Sigrún Erlendsdóttir sem næstkomandi mánudag mun, ásamt 34 hlaupafélögum sínum, hlaupa maraþon í Boston í Bandaríkjunum til styrktar flogaveikum börnum og Landssambandi áhugafólks um flogaveiki, LAUF.

 
Lesa meira...
Nordjobb
föstudagur, 18. apr

Ert þú með fötlun og vilt bætast í hóp þeirra sem vinna á Norðurlöndunum.

 

Nordjobb óskar eftir því að fá fleira fólk með fötlun á vinnumarkað Norðurlandanna, þess vegna viljum við reyna að útvega þér sumarstarf. 

Nordjobb getur boðið þér sumarstarf, húsnæði og áhugverða frístundadagskrá, ef þú ert á milli 18 og 28 ára og hefur vald á sænsku, norsku eða dönsku.

Upplifðu sumar á Norðurlöndunum - sæktu um Nordjobb í dag!

www.nordjobb.net/jobbtillalla.html 

 
Náms- og starfsendurhæfing
miðvikudagur, 9. apr
Hringsjá veitir endurhæfingu til náms og starfa. Hringsjá er ætluð einstaklingum eldri en 18 ára, sem vegna heilsufarsvanda, fötlunar, áfallasögu og/eða félagslegra aðstæðna hafa ákveðið að endurmeta og styrkja stöðu sína og að efla persónulega færni.

Fullt nám er 3 annir
Inntaka í fullt nám fer fram tvisvar á ári
Umsóknarfrestur fyrir haustönn er til 16. maí 2008.

 
Lesa meira...
Grein úr Morgunblaðinu 27. mars 2008
miðvikudagur, 2. apr

Mikilvægt að fá strax fræðslu um sjúkdóminn

„Hræðileg upplifun að sjá barnið sitt fá flogakast og vita ekkert hvað er í gangi,“ segir móðir níu ára flogaveiks drengs.

Fyrir þremur árum fór sonur minn í nefkirtlatöku og þegar hann kom heim úr henni fékk hann fyrsta flogakastið,“ segir Thelma Björg Brynjólfsdóttir, en sonur hennar og Said Lakhlifi Mickael Ómar, er nú níu ára gamall. Fyrsta flogið var stórt, „og þar með hófst hans sjúkrasaga,“ segir Thelma.
 
Lesa meira...
Grein úr Morgunblaðinu 27. mars 2008
miðvikudagur, 2. apr

Ranghugmyndir upprættar

„Það er mjög mikilvægt að foreldrar fái fræðslu um flogaveiki strax og barn þeirra er greint flogaveikt,“ segir Pétur Lúðvigsson, barnalæknir á Barnaspítala Hringsins. „Margir eru með ranghugmyndir um flogaveiki, alls konar fordómar eru í gangi sem mikilvægt er að eyða svo fólk geti horft á sjúkdóminn réttum augum.“
 
Lesa meira...
Grein úr Morgunblaðinu 27. mars 2008
miðvikudagur, 2. apr

Fræða börn með flogaveiki og foreldra þeirra

Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is

Árlega greinast um fimmtíu börn yngri en átján ára með flogaveiki hér á landi. Fyrstu skrefin eftir slíka greiningu geta verið börnunum og aðstandendum þeirra erfið og á stuttum tíma þarf fólk að tileinka sér mikla þekkingu á sjúkdómi sem það áður hefur jafnvel haft litla sem enga vitneskju um.
 
Lesa meira...
Nýtt Laufblað
föstudagur, 28. mar
Jæja nú er komið út fyrsta tölublað Laufblaðsins 2008 og ætti það að berast öllum félagsmönnum á næstu dögum. Fljótlega mun eintak af blaðinu vera aðgengilegt hér á síðunni.
 
Aðalfundur
föstudagur, 28. mar
Aðalfundur Laufs, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki verður haldinn laugardaginn 5. apríl 2008 að Grand hótel Sigtúni 38 Reykjavík, í sal sem heitir Lundur. Fundurinn hefst klukkan 11:00.
Aðalfundarboð hafa verið send til allra félagsmanna ásamt nýjum bæklingi sem félagið er að kynna. Bæklingurinn heitir "Við viljum sjást" og fylgir armband með. Þetta átak er gert til að auka þekkingu á flogaveiki og efla öryggi flogaveikra í sundi.
Ef þú félagsmaður góður hefur ekki fengið fundarboðið í hendur vinsamlegast hafðu þá samband við okkur á skrifstofunni.
 
Þakkir
föstudagur, 28. mar
Sjálfboðasamtök hafa í gegnum tíðina veitt fjölbreytilega og mikilvæga þjónustu fyrir ýmsa hópa samfélagsins, barist fyrir hagsmuna- og réttindamálum og virkjað fólk til þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi. Sjálfboðastörf eru ekki einungis spurning um val einstaklinga, heldur hefur söguleg þróun og ytri samfélagsaðstæður haft mikil áhrif á hvernig umfang, skipulag og samsetning þessa sviðs er í mismunandi velferðarkerfum. Sum samfélög standa þétt við bak slíkra samtaka og hafa með ríkulegum fjárframlögum, gert þeim kleift að sinna margvíslegri samfélagslegri þjónustu, sem ekki hefur verið á færi annarra að veita. Sum samtök reiða sig á velvild einstaklinga og fyrirtækja sem með fjárframlögum og öðrum stuðningi gerir þeim kleift að koma málefnum sínum á framfæri og vinna að hagsmuna- og réttindamálum sinna félaga. Því er það ómetanlegt og sérstaklega þakkarvert þegar fyrirtæki sína frumkvæði í að styðja starf sjálfboðasamtaka.

 
Lesa meira...
Greinar um flogaveiki í Morgunblaðinu
föstudagur, 28. mar
 
Lesa meira...
EREC veitir styrk á ráðstefnu um flogaveiki og samfélag
föstudagur, 28. mar
 
Lesa meira...
Myndband á netinu
miðvikudagur, 27. feb
Okkur langar til að benda ykkur á myndband sem við rákumst á á netinu. Myndbandið er eftir Roy Sucholeiki lækni sem sérhæfir sig í flogaveiki.

 
Lesa meira...
Nýjar tölvur
miðvikudagur, 27. feb
Tölvukostur félagins var komin til ára sinna og leituðum við því til Landsbankans.

 
Lesa meira...
Óvæntur styrkur
miðvikudagur, 27. feb
Eigendur The Body Shop á Íslandi voru svo elskulegir að hafa samband við félagið og vilja veita okkur styrk með sölu taupoka.

 
Lesa meira...
Nýir bæklingar
miðvikudagur, 27. feb
Félagið hefur nýverið gefið út tvo nýja bæklinga sem hægt er að nálgast á skrifstofu LAUFs og á tölvutæku formi hér með því að tvísmella á myndirnar hér fyrir neðan fréttina.

 
Lesa meira...
Afhending sundpoka
miðvikudagur, 27. feb
Smelltu Þann 18. febrúar síðastliðinn fór stjórn LAUFs til fundar við nokkra starfsmenn Barnaspítala hringsins. Tilgangurinn var að afhenta fræðsluefni um flogaveiki og biðja þá að dreifa því til þeirra sem greinast með flogaveiki og þeirra sem eru þegar greindir.
 
Lesa meira...
Ný heimasíða MedicAlert
miðvikudagur, 27. feb
 
Lesa meira...
OPIÐ HÚS
mánudagur, 22. okt
Október 2007
 
Lesa meira...
JÓLAFUNDUR
mánudagur, 22. okt
Hin árlegi jólafundur LAUF verður að þessu sinni haldinn sunnudaginn 25. nóvember
 
Lesa meira...
Hringsjá – náms- og starfsendurhæfing
mánudagur, 22. okt
Október 2007

Í Hringsjá er veitt öflug endurhæfing til náms og starfa sem hjálpað hefur mörgum til að koma sér af stað aftur t.d. eftir áföll. Endurhæfingin er ætluð einstaklingum eldri en 18 ára sem vegna heilsufarsvanda, fötlunar, áfallasögu og eða félagslegra aðstæðna hafa ákveðið að endurmeta og styrkja stöðu sína og að efla persónulega færni.
 
Lesa meira...
Gluggi að heilanum
föstudagur, 28. sep
Þýdd frétt september 2007
Gluggi að heilanum

 
Lesa meira...
Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ
föstudagur, 28. sep
September 2007
Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ

 
Lesa meira...
Systkinasmiðjan – ný námskeið að hefjast
föstudagur, 28. sep
September 2007 Systkinasmiðjan – ný námskeið að hefjast

 
Lesa meira...
Aukin áhætta á sjálfsvígum
fimmtudagur, 30. ágú
Ágúst 2007
Hættan á sjálfsvígum meðal fólks með flogaveiki
 
Lesa meira...
Lögfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga á vegum ÖBÍ
fimmtudagur, 30. ágú
Ágúst 2007
ÖBÍ hefur gert samning við Landslög – lögfræðistofu
 
Lesa meira...
Hlaupið til góðs!
fimmtudagur, 30. ágú
Ágúst 2007
Kærar þakkir til allra
 
Lesa meira...
Opið hús – ungt fólk með flogaveiki
fimmtudagur, 30. ágú
Ágús 2007
Miðvikudaginn 12. september
 
Lesa meira...
Heilt maraþon í fyrsta sinn – í þágu LAUFS
þriðjudagur, 14. ágú
Ágúst 2007 Elías B. Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs hjá Ferðamálastofu á Akureyri,
 
Lesa meira...
Allir sigra – hlaupið til góðs
þriðjudagur, 14. ágú
Ágúst 2007 FÉLAGAR OG VELUNNAR LAUFS!
 
Lesa meira...
Maraþon Glitnis
föstudagur, 29. jún
Allir sigra – Reykjavíkurmaraþon Glitnis

Júní 2007
Glitnir heitir á starfsmenn sína en einnig alla viðskipavini að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni þann 18. ágúst n.k. og til mikils er að vinna.
 
Lesa meira...
Tívolídagur í Smáralind
mánudagur, 25. jún
Félögum í Laufi er boðið á Tívolídag í Smáralind, mánudaginn 16. júlí, milli kl. 10.00 og 12.30
 
Lesa meira...
Læt ekki flogaveiki stoppa mig!
fimmtudagur, 31. maí
Maí 2007
María Dröfn Þorláksdóttir er kraftmikil ung kona sem hefur glímt við flogaveiki frá því að hún var þriggja ára gömul.
 
Lesa meira...
Áhugaverð könnun á aðstæðum fólks með flogaveiki í Danmörku
fimmtudagur, 31. maí
Maí 2007
Samtök flogaveikra í Danmörku hafa gert áhugaverða könnun. Sendur var spurningalisti til 1000 félaga í samtökunum og svarhlutfall var um 65%.
 
Lesa meira...
Flogaveiki reynir mikið á systkini
miðvikudagur, 25. apr
Janúar 2007
Nýjar rannsóknir sýna að systkini barna með flogaveiki líður verr en margir hafa talið hingað til.
 
Lesa meira...
Tökum höndum saman og sýnum samstöðu!
miðvikudagur, 25. apr
Laugardaginn 28. apríl n.k. stendur til að fremja gjörning við Reykjavíkurtjörn. Hann ber heitið „Tökum höndum saman“ og er hluti af listahátíðinni List án landamæra
 
Lesa meira...
Upplýsingar til foreldra barna með flogaveiki
miðvikudagur, 25. apr
Getum við fengið fjárhagsstuðning? Framfærendur fatlaðra og langveikra barna eiga rétt á aðstoð frá Tryggingastofnun ríkisins1 að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
 
Lesa meira...
Leggðu góðu málefni lið
miðvikudagur, 25. apr
Landsbankinn opnaði þjónustuna Leggðu góðu málefni lið á síðasta ári um er að ræða mikilvæga þjónustu, fyrir ýmis hagsmunasamtök,
 
Lesa meira...
Nýtt námskeið
miðvikudagur, 25. apr
Því miður varð að fella niður listmeðferðarnámskeið sem Lauf ætlaði að bjóða félögum sínum vegna þátttökuleysis.
 
Lesa meira...
Ný stjórn Laufs
miðvikudagur, 25. apr
Aðalfundur Laufs var haldinn 31. mars s.l.
 
Lesa meira...
Óvissuferð Laufs í júní 2007
þriðjudagur, 20. mar
Stefnt verður að því að fara í óvissuferð laugardaginn 2. júní n.k.
 
Lesa meira...
Tilboð frá Pro Optik - gleraugu
þriðjudagur, 20. mar
Pro Optik og Lauf hafa gert með sér samkomulag til eins árs sem felst í því að allir félagsmenn Laufs og fjölskylda þeirra fá afslátt af vörum og þjónustu. Pro Optik lét útbúa gleraugnaávísun að upphæð kr. 23.900, sem send hefur verið öllum félagsmönnum Laufs. Framvísun hennar í verslunum Pro Optik felur í sér greiðslur upp í gleraugnaumgjörð. Í boði eru margar tegundir umgjarða ef keypt eru sjóngler á sama stað, einnig er frí sjónmæling fyrir þá sem kaupa sjóngler. Lauf mun fá fleiri tilboð á samningstímanum fyrir sína félagsmenn s.s. linsu-, sólglerugnatilboð ofl. Vonum að þetta komi sér vel fyrir félagsmenn Laufs.
 
Lesa meira...
Nýtt námskeið
þriðjudagur, 20. mar
Lauf hefur ákveðið að bjóða félögum sínum upp á listmeðferðarnámskeið. Sérhæfðir leiðbeinendur, tveir sérfræðingar í listmeðferð og leikari sem leggur áherslu á leikræna tjáningu leiða vinnuna. Kostnaði þátttakenda verður haldið í lágmarki (ca. 4.000 kr. Lauf mun borga annan kostnað).
 
Lesa meira...
Aðalfundur og fræðslufundur Laufs
þriðjudagur, 20. mar
Aðalfundur Laufs verður haldinn laugardaginn 31. mars kl. 14-17 að Grand Hóteli, Sigtúni 38, í salnum Háteigi á 4. hæð. Að þessu sinni verður fræðsluerindi fyrir aðalfundinn og boðið verður upp á kaffiveitingar.
 
Lesa meira...
Skattar og gjöld
miðvikudagur, 14. feb
Skattar og gjöld
 
Lesa meira...
Styrktarsjóður Baugs Group – styður Lauf
miðvikudagur, 14. feb
Styrktarsjóður Baugs Group – styður Lauf
 
Lesa meira...
Frá foreldri til foreldris– frá jafningja til jafningja!
miðvikudagur, 14. feb
Frá foreldri til foreldris– frá jafningja til jafningja!
 
Lesa meira...
Evrópska sjúkratryggingakortið
miðvikudagur, 14. feb
Evrópska sjúkratryggingakortið
 
Lesa meira...
Frelsi í hugsun - Freedom in Mind
föstudagur, 15. des
Alþjóðlegt listaverkefni fyrir fólk með flogaveiki
 
Lesa meira...
Fjórhjól og klifur að Indriðastöðum
föstudagur, 15. des
Fjórhjól og klifur að Indriðastöðum
 
Lesa meira...
Jólagleði Laufs
föstudagur, 15. des
Jólagleði Laufs
 
Lesa meira...
ný síða LAUF
mánudagur, 11. des
Ný síða Lauf
 
 
 
Kannanir

Um samtökin Fréttir Um flogaveiki Hafa samband
| Lauf Félag flogaveikra | lauf@vortex.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun